Prófíll

  • Nafn: Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir
  • Stađur: Hornafjörđur
  • Hjúskaparstađa: Einhleyp.

Hvenćr á Eyja afmćli?

Hvenćr er skólinn búinn?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Kannski til rvk í dag ?

22. apríl 2010 klukkan 07:47
Gleðilegt Sumar! =]
Ég bloggaði ekkert í gær því ég gleymdi því.. og ég sofnaði >.<
Sofnaði með tónlist og allt í gangi :/ .. vaknaði svo 7 -.-
Mamma og Krisín eru að fara til Rvk í dag.. það er búið að opna veginn (y) .. þær eru að fara að kaupa fermingardressið á Kristínu, verða fram á sunnudag!!! .  Ég ætla að reyna eins og ég get að koma með því ég bara þarf að komast til rvk.. þarf að hitta Birnu og ehv, ef ég fer þá fer ég kannski með henni í skólann á föstud.! :D
Það er allavega betra en hér, hér er rusladagur á föstud. -.- !   Ég er svo ekki að fara að mæta...
En já, ef ég fer ekki til rvk þá fer ég útá Höfn að hitta Ingibjörgu Lúcíu, Sölku ofl. :] ! - Sund eða ehv.
Ég vaknaði í gær, fór í skólann.. man svo eiginlega ekkert eftir því hvað ég gerði.. Heimilisfr. og ehv ? .
Svo kom ég bara heim, og lét mér leiðast.
En já, hef ekkert meira að blogga um.. 

Veður: Það var ískalt í gær minnir mig..!
Skap: Ég var góð sko.. nema pinu pirruð því mamma ætlar greinilega ekki að leyfa mér að koma með til Rvk!-.-

Bæbæ! =]

Jájá.. ?

20. apríl 2010 klukkan 23:18

 

Halló geimverur! 8)
Í dag var bara skóli.. og aftur fórum við í Sjúga - blása um morguninn x] . Og viti menn.. það kysstust strákur og stelpa!! :o Já, þau kysstust. Spilið datt rétt áður en hún var að fara að sjúga það af honum.. og voila, varirnar skullu beeint saman ! :æ
Því miiður get ég ekki sagt ykkur hverjir það voru.. það væri of vandró. :$  En shit! Það er búið að banna okkur að vera í þessum leik!! :o Útaf það gæti komið frunsa,, só!? .. og Sædís(kennarinn) segir að þetta sé fullorðinsleikur! -.- .. Samt í tónment í dag þá stal ég einu spili og við fórum í þetta í frímó :] .. en '99 mdlin voru svo þroskaheft að þau gátu ekki látið okkur í friði.. -.- Þannig að við gátum ekki mikið verið í þessu. (þau eru svo fokk wannabe að það er ekki eðlinlegt! o: .. ekki móðgast ef eitthvað '99 mdl er að lesa þetta, þetta á ekki við um alla)..
Það voru bjúgur í matinn 8]
 En þetta var bara svona normal skóladagur.. *rolleyes* 
Kom svo heim,, fór beint í tölvuna. (a) svo fór ég út með Chihuahua hundana og var úti geðveikt lengi (y) var bara ehv að chilla á trampó :P
Svo fór ég inn, í tölvuna ofcorse -.-  -- ekkert annað hægt að gera!
Svo kom bara kvöldmatur, ehv svona .. ohh man ekki hvað það heitir x] .. ehv kjöt.

Fokk hvað mig langar til reykavíkur!! :O .. Það er ekki eðlinlegt sko.. :s
En auðvitað er þetta helvítis eldgos þannig að ég mun ekki komast þangað næstu mánuðina.. nema náttla fara norðurleiðina þanna hjá akureyri.. en sjééns að mamma myndi nenna því -.- ..
Hata þetta gos.

En já mér leiðist svo hér er texti af snilldar lagi x] :

Tik Tok Skinka.
Vakna alla morgna og set á
mig meik, svo set ég tonn
af dökku púðri ó ég er svo
feik.
Svo fer ég út, set upp stút,
allir horfa á mig.
Allar nætur niðr'í bæ, þó ég
sé of ung.
Ég er svo sexy og svo cool,
alldrei er ég fúl.
Ég þoli sko ekki school.
Þó pilsin séu semi stutt
og brjóstin push-uð upp,
er ég sko engin skinkaaa...
Ómægat, check it out.
Fólk vill vera eins og ég.
Ég er heit, fkn sæt 
Ert'að reyn'að pikka fight?
Ó fokk, ég sé rót.
Þarf að panta tím'á Aristó.
Óóóó óóóó.
Ljótt hár, farð'í ljós, oj þú
lyktar eins og fjós! Horfð'á
mig sjáðu þig, einhver ætt'að 
vara sig. Meira meik, allt í
steik, svartar augnabrúnir,
KODDÍ SLEIK! 
Óóóó óóóó.
Alltaf umkringd flokk af 
gaurum sem að vilja mig fá.
Þeir bara standast ekki það
sem ég get látið þá sjá.
En ég vil bara finna
einhvern, sem fullkominn 
er.
Því hann skal vera nógu, 
brúnn svo hann passi með
mér. 
Ég sagði!
Tanaður svo vel,
og massaður í hel.
Samt ég allri athygli stel..
Já, já, já!
Ávallt hnakkadú
sem láta mig segja úú,
láta mig segja úú.
Láta mig segja!
Ómægat, check it out.
Fólk vill vera eins og ég.
Ég er heit, fkn sæt 
Ert'að reyn'að pikka fight? 
'96 eða 5, ég er samt sko
ekkert grimm ónei.
Óóóó óóóó.
Buxurnar, X-Small, svo þær
sýni rassinn vel. Cameltoe,
ég er mjó, ég á alltaf nýja
skó. Maskarinn er búinn,
svon'er tilveran geggjað snúin!
Óóóó óóóó.
Hahahaha!

Hehe, svoldið langt :$ . En hey, ætla að drulla mér í sturtu og svo beint að sofa! :D

Veður: Það var sól, hlýtt og gott. En svo fór að snjóa smá seinnipartinn, ekki mikið.
Skap: Ég er fín!

GÓÐANÓTT!
:3
 

 

Böggandi breytingar.. >.<

20. apríl 2010 klukkan 00:27

 

Hallów. :L
Dáldið sein að blogga, það er eiginlega kominn nýr dagur :s .. 
En ég er ekkert búin að gera neitt mikið í dag, vaknaði klukkan hálf 6 o.O .. og fór í skólann svona 20 mín í átta ?..
Þegar ég kom voru sumir í Sjúga - blása leiknum :æ .. Djöfull hló ég maður, elska þennan leik.. ég fer alltaf í hláturskast :'] .. get stundum ekki verið með því ég fer bara að hlæja >.< ! :'P
Svo var bara ehv venjulegur mánudagur í skólanum -.- .. fiskur í matinn (n) ..
En shit ég varð pirruð! :o .. erum búin að vera að lesa heima í einhverri bók, heimavinna, og svo áttum við að gera ritgerð. Köflunum var skipt á milli nemenda og ég fékk kafla nr 12.. við áttum að skila þessu 26.apríl/mánudaginn í næstu viku. (eins og þið kannski vitið ef þið eruð búin að lesa bloggin mín..) .. en svo fattaði Sædís (kennarinn) að það var dáldið ósanngjarnt því td. sumir voru með næstum 20 bls en aðrir svona 3.. þannig að hún breytti þessu. Núna er ég komin með 11 kafla.. og ég sem var búin með meira en helminginn af ritgerðinni um 12 kafla!! >.< :@ . Ég og Hákon Logi vorum einu sem vorum byrjuð.. og við vorum bæði næstum búin -.- . & við máttum ekki skipta við þá sem voru með fyrri kaflann okkar! :o Þannig að núna þarf ég að byrja allt uppá nýtt á þessari fkn ritgerð-.- ! 
Een í síðasta tímanum vorum við í heimilisfr. .. gerðum ehv franskar pönnukökur :P Var með Hafdísi og HákoniL í hóp (y) . Svo þegar tíminn var allveg að verða búinn fóru sumir í hópnum í Sjúga - blása.. eiginlega bara strákar, frekar gay ! :'D
Það er samt eitt sem böggar mig þegar maður er í þessum leik.., Óttar vill alltaf vera við hliðiná mér svo hann fái að ,,kyssa'' mig! >.< .. er samt eiginlega alldrei með svo.. 
Mér finnst þessi leikur svo vandró :$ xd
En svo fór ég bara heim,, ekki að gera neitt.. hafði 0 að gera eins og ávallt .. -.- Þoli ekki þennan stað.
Langar að flytja á Höfn <3 . Þá er get ég alltaf hitt vinina :L ..  en neinei, það er ekki að fara að gerast svo ég get bara látið mig dreyma um það. -.-
- En fór svo bara ehv út með Chihuahua hundana og var bara á trampólíninu á meðan.. kom inn og fór að tölvast. Svo var ég svo ógeðslega þreytt að ég fór og lagðist í rúmið hennar mömmu.. og eins og alltaf þegar ég ætla rétt að ,,hvíla augun'' sofna ég. xD
Vakna svo geðveikt grumpy,, og þá er Hildur búin að stela tölvunni af mér.. en ég er stærri, feitari og frekari svo hún var fljót að forða sér þegar ég skipaði henni að drulla sér út :L :æ
En já,, klukkan er að verða 1.. er farin að sofaa.

Veður: Það var sökkað veður í dag! Rok og skíta kuldi!
Skap: Ég er góð sko. 
Góðanóttsofðuróttdreymiþigvelogeitthvaðblaah! =]

 

Afslöppuđ..

18. apríl 2010 klukkan 23:34
Hæhó!  ? x]
Dagurinn í dag var ekkert spes, ég vaknaði klukkan 2 o.o ! .. og er bara búin að vera að hanga í tölvunni síðan..     -.-  Er búin að hafa gjörsamlega 0 að gera.. 
Þannig að í dag verður ekkert mikið blogg :/
Ef einhver er yfir höfuð að lesa þetta þá kemur örugglega nóg af bloggi á morgun ;)
En já, það er sunnudagur.. Biddu, var ekki föstudagur fyrir 5 mín? o.o
En sunnudagur þýðir mánudagur daginn eftir.. mánudagur þýðir að helgarfríið sé búið og það þýðir að það sé skóli ! -.-
Er bara að pæla í að fara að sofa fljótlega.. hef ekkert annað að gera *rolleyes*

Ég minni enn og aftur á að kvitta í gestabókina! :) 

Veður: Í dag var mjög gott veður, skýað eða heiðskýrt.. man ekki hvort. Og hlýtt.
Skap: I'm always fresh! Samt lonely..
Bless og góða nótt! :)

Afmćli hjá Ingu Kristínu :D

17. apríl 2010 klukkan 22:41

Halló, í þrijða sinn í dag! >.<
Þegar ég var búin að baka skrapp ég á facebook og þá talar Inga Krisín K. við mig, en samt var þetta Ingibjörg Lúcía,, og hún spurði hvort ég ætlaði að koma í afmælið hennar Ingu..
Þá hafði ég gleymt því! D: .. ég var náttla bara ,,FUUU!'' .. en mætti samt, 1klst of seint c: a: !
Kom beint í pizzuna ;)
Fórum svo bara ehv að chilla í pakkaleik, í fyrsta pakkanum voru vatnsblöðrur sem Sigga fékk (y) og í seinni voru sápukúlur er hún Salka mín fékk :D
Svo fóru sumir ehv að gera inní herberginu hennar Ingu og sumir fóru út.. svo enduðu allir úti í Tvítví :P .. svo nenntum við því ekki lengur og fórum inn.. sumir fóru í herbergið hennar Ingu í tölvuna eða ehv en aðrir fóru að horfa á Tv.. sem endaði með leik sem heitir Sjúga - blása minnir mig :P .. Þá stöndum við í hring og látum 1 spil ganga, s.s. sjúgum spilið á munninum og ,,kyssum'' næsta.. :P .. og ef spilið dettur þá gæti það endað með kossi! x'd
Ég, Ingibjörg Lúcía, Sigrún Salka, Sigga, Hildur, Adisa, Sigrún Birna, Ingibjörg V. og Óttar vorum í þessum snilldar leik! ;'d
Svo var afmælið búið um hálf sjö.. þá náði minn bróðir í mig c: .. Nýkominn með bílpróf (y) 
Er svo bara búin að vera að tölvast síðan.. :P
Bubaai! :*

Eyja orđinn bakari..

17. apríl 2010 klukkan 14:08

Sæl, aftur..
Já.. mér leiddist áðan og ég nennti ekki út svo á ákvað að baka c: !
Bakaði fínustu skúffuköku :P .. kremið var samt frekar misheppnað a.m.m., það var pínu of mikið smjörlíki ;s 
En öllum fannst hún góð og ég fékk engar kvartanir ;)
Ég veit ekkert hvað ég á að segja meira.. 
Er að spá í að fara út á trampolín c: ..svo,
Blæblæ! :D 
                                             

Vaknađi snemma..

17. apríl 2010 klukkan 09:47
Góðann dag! 
Þvímiður var ég svo óheppin að ég sofnaði ekki fyrr en um 3-4 leytið og vaknaði klukkan 8 í morgun! -.-
Er ekki búin að gera mikið í dag, enda dagurinn varla byrjaður :P
Ég fékk mér morgunmat áðan, Honní Nött Seríos ofcorse (y) ! Er svo bara búin að vera að tölvast eitthvað.. byrjaði á einhverri ritgerð sem ég þarf að skila 26.apríl.. þurfum að lesa ritgerðina yfir öllum bekknum og það gildir 50% af einkunninni.
Er ekki að gera neitt núna nema að hlusta á Iðunni leika við syni sína, þá Styrmi og Hressó (Chihuahua) .. Stormur (pabbinn) liggur bara undir rúmi og er örugglega að deyja úr hita :P
Endilega kvitta í Gestabók, gott fólk! :D

                                                                                           Veður: Sól og smá kaldur vindur en samt ágætlega hlýtt.
     Skap: Fresh!
- Eyjalín Harpa kveður. - 
                                                                    
 

Bleggedíblogg! :L

17. apríl 2010 klukkan 01:15
Halló! 
Ég heiti Eyjalín Harpa og ef þú ert að skoða þetta þá leiðist þér örugglega mjög mikið..
Yeb.. ég hef ákveðið að byrja að blogga, hehö.
Í gær:
Veistu.. ég man það varla o.O 
Vaknaði kl 07:30 eða ehv og fór ofc. í skólann.. - kom heim kl 14:20 ca. :] .. fór í tölvuna.. && man ekki meira x'd !
Í dag:
Vaknaði á sama tíma og í gær.. og bara það sama, fór í skólann og kom heim á sama tíma.
Fékk mér svo Honní Nött Seríos c: & fór í tölvuna :I .. ætlaði svo að ''hvíla augun'' í smá stund svona um 3-4 leytið en neinei, svaf ég ekki bara til ca 9! >.< :'æ  er svo bara buin að vera að hanga í tölvunni & lonely'ast ._. !
Ég nenni ekki að blogga meira i kveeld, reyni að blogga á hverjum degi! c: 
I'm Out! n_n
                                                                                

Auglýsing

Gagnasafn

Klukkan

Setning vikunnar!

With a smile like yours, how can I not smile back? ♥ .

Könnun

Hvađ finnst ţér um mig?